VELDU DAGSETNINGAR TIL AÐ BÓKA
SVEFNPLÁSS
-
Hámarks fjöldi gesta
6 manns -
Svefnherbergi2
-
Einstaklingsrúm2
-
Hjónarúm1
-
Svefnsófi1
LÝSING
Íbúðin er á efstu hæð í Villamartin Gardens 2 kjarnanum í Villamartin, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, göngufæri við matvöruverslun, veitingastaði og La Zenia mallið. Einungis tekur 45 mínútur að keyra frá Alicante flugvelli í íbúðina. Útsýnið úr íbúðinni er einstakt, óhindrað útsýni til sjávar. Íbúðin er í snyrtilegum 7 blokka íbúðakjarna. Í garðinum eru tvær sundlaugar og sturtuaðstaða. WiFi, loftkæling og allt til alls.
Falleg stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið, í stofunni er tungusófi sem einnig er 140cm svefnsófi, 75" smart TV og fallegt borðstofusett. Frá stofu er rennihurð út á góðar suðursvalir með fallegum húsgögnum og góðri aðstöðu, þaðan er stigi upp á um mjög stórar einka þaksvalir sem liggja yfir allri íbúðinni. Þvottahús er innaf eldhúsi með þvottavél.
Svefnherbergin eru tvö
Hjónherbergið er með 180 cm hjónarúmi og góðum fataskápum og innangent er inná sér baðherbergi með sturtu.
Gestaherbergið er með tveimur 90cm einstaklingsrúmum og góðum fataskápum. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu. Sængur eru í íbúðinni til að nota á vorin og haustin.
Baðherbergin eru tvö
Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum. Hitt baðherbergið er til vinstri þegar komið er inn í íbúðina, þar er salerni, vaskur, góð sturta og skúffur. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir hvern gest og einnig er hárblásari. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til notkunar í sameiginlegum sundlaugargarði og til að taka með á ströndina
Suður svalir, þaksvalir og sameignilegur sundlaugargarður
Algjör lúxus útiaðstaða er til staðar í íbúðinni. Á neðri hæðinni eru stórar suðursvalir með matarborði, sex stólum og tveimur hægindastólum. Á þaksvölunum sem ná yfir alla íbúðina eru fjórir sólbekkir, sófasett, grill og sturta. Báðar svalir eru skjólgóðar og sólin skín þar allan daginn.
Í sameign inni á milli blokkanna er sundlaugargarður með sundlaugum og sturtum í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum einnig með fjölda annarra íbúða í þessu hverfi, Villamartin Gardens 1, Mirador de Villamartin, Green Hills og fleiri sem eru við sömu götu og stutt að labba á milli. Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.