Skemmtigarðar

Á Costa Blanca svæðinu má finna mikið af skemmtigörðum og ætti engum að leiðast. Á svæðinu eru ýmsar tegundir skemmtigarða og jafnvel stærstu skemmtigarðar Evrópu.

 

Aquapolis vatnagarðurinn í Torrevieja

Er staðsettur í Torrevieja og hefur upp á öll þau helstu vatnaleiktæki og brautir að bjóða sem er í stærri görðum. Góður fjölskyldugarður staðsettur í Torrevieja eða nánar tiltekið rétt við N-332 sem liggur fyrir ofan borgina. Frábært að taka með sér nesti í kæliboxi og eyða deginum þarna. Mini park fyrir litlu börnin, öldulaug og frábærar rennibrautir fyrir þá sem vilja meira fjör.  Hinum megin við N-332 er verslunarmiðstöðin Habaneras og afþreyingarstaðurinn Ozone þar sem bíósalirnir eru og keiluhöllin.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu garðsins. www.torrevieja.aquopolis.es/

Rio safari

Dýragarðurinn í Elche er skemmtilegur að heimsækja þar geta gestir dýragarðsins gengið um og skoðað dýrin og gaman er að kaupa hnetur sem eru seldar á staðnum og gefa dýrunum.  Nánari upplýsingar  má finna á heimasíðu garðsins www.riosafari.com/

Polar Park

Lítill skemmtigaður í Santa Pola rétt fyrir norðan Torrevieja. Ókeypis er í þennan skemmtilega skemmtigarð þar sem eru hoppukastalar, rennibrautir, vatnabátar, mini golf og fjöldinn annar af leiktækjum. Þarna eru einnig veitingastaðir, ísbúðir og margt fleira.

Go-kart

Brautirnar eru á nokkrum stöðum á Costa Blanca svæðinu þar sem bæði ungir sem aldnir geta reynt á aksturshæfileika sína en á þessum brautum eru til leigu miskraftmikilir Go -kart bílar eða allt eftir aldri og getu hvers og eins. Leiguverð á Go-kart bíl er mismunandi eftir stærð og krafti bílanna. Fín Go-kart leiga er við N-332 stutt frá minni Carrefour versluninni.

Terra Mitica

Langstærsti skemmtigarður Costa Blanca svæðisins og er algjör ævintýraheimur bæði fyrir unga sem aldna. Það er nauðsynlegt að heimsækja garðinn að minnsta kosti einu sinni. Best er að gera ráð fyrir að vera í garðinum allann daginn, mikið af tækjum fyrir alla aldurshópa.  Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu garðsins www.terramiticapark.com/