Nánari lýsing

Aldeas III – hús nr. 34

Húsið er á mjög góðum stað í Cabo Roig þar sem stutt er að rölta niður á ströndina og á göngugötuna í hverfinu þar sem er mikið mannlíf alla daga.  Consum matvöruverslunin er í göngufæri og einnig er markaður á fimmtudögum í hverfinu.
Komið er inní fallega stofu með borðstofu og þar er góður sófi sem jafnframt er svefnsófi. Út frá stofunni er hægt að ganga beint út á verönd fyrir framan íbúðina þar sem er sófasett.  Bjart og vel búið eldhús með uppþvottavél, örbylgjuofni, kaffivél, brauðrist, hraðsuðukatli, ísskáp með frystihólfi og öllum helstu áhöldum til matargerðar.  Út frá eldhúsi er hægt að ganga út á flísalagða verönd þar er þvottavél, borð, stólar, gasgrill og frábær aðstaða til að borða úti.

Svefnherbergin eru tvö

Hjónaherbergi er á 2. hæð með hjónarúmi, loftkælingu, fataskáp og útgengi á litlar svalir með fallegu útsýni yfir garðinn, á svölunum eru borð og stólar.
Gestaherbergi er á 2. hæð með loftkælingu, tveimur einstaklingsrúmum og fataskáp.
Sængur, koddar og rúmföt fylgja og einnig er barnaferðarúm fyrir ungabarn.

Baðherbergin eru tvö

Á jarðhæð er lítið salerni með WC og vaski.
Á 2. hæð er gott baðherbergi með WC, vaski  og baðkari með góðri sturtu.
Baðhandklæði fylgja leigu, en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd. Hárblásari er í húsinu.

Svalir, garður og sameiginleg sundlaug

Á annarri hæð eru svalir út frá svefnherbergi með útsýni til sjávar.  Á þriðju hæð hússins eru góðar þaksvalir með útsýni til sjávar. Sólbekkir eru til afnota fyrir gesti í húsinu og einnig eru léttir strandstólar.  Út frá verönd fyrir framan húsið er farið í sameiginlega sundlaugargarðinn. Þar er stór sundlaug með nuddpotti, sturtur og gott pláss fyrir sólbekki.