Nánari lýsing

Playa Golf 108

Glæsilegt ný uppgert fjarkahús í Lomas de Cabo Roig hverfinu og er mjög vel búið, WiFi, gasgrill, loftkæling og allt til alls.  Rúmgóð verönd/garður er fyrir framan húsið og einnig eru góðar þaksvalir.  Stór sundlaugargarður er í sameign sem gestir hafa aðgang að, hverfið er rólegt og gott.  Veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn, í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig svo dæmi sé tekið. Einnig er mjög stutt á fjölmarga flotta golfvelli sem eru þarna allt í kring, Las Ramblas, Villamartin og Campoamor.

Gengið er beint inn í opið rými með fallegri stofu sem einnig er borðstofa og opið inní eldhúsið.  Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi, Smart TV,  loftkæling og moskító net fyrir glugga.
Eldhúsið er vel búið og þaðan er síðan gengið inní þvottahús/geymslu. Í eldhúsinu er ísskápur með frystihólfi, uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, samlokugrill, vöfflujárn, blandari, hraðsuðuketill og öll helstu áhöld til matargerðar. Í eldhúsinu er einnig neysluvatnskrani svo hægt er að drekka vatn beint úr krana.

Svefnherbergin eru tvö

Húsið er með tveimur svefnherbergjum og einnig er svefnsófi í stofunni,  gistirými er því fyrir 4-5 manns.
Hjónherbergið er með 160cm hjónarúmi, góðum fataskápum, loftkælingu og einnig er moskító net fyrir glugga.
Gestaherbergið er tveimur 90cm einstaklingsrúmum, góðum fataskáp, loftkælingu og moskító net fyrir glugga.
Bæði svefnherbergin eru með nýjum rúmum, sængur, koddar og rúmföt fylgja fyrir gesti og einnig er barnaferðarúm og barnakerra til afnota fyrir gesti.

Baðherbergin eru tvö

Rúmgott baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu er á milli svefnherbergjana.
Annað salerni er síðan uppi á þaksvölum, það var sett nýtt 2019 og er með salerni, vaski og léttri innréttingu.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari í húsinu.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.

Stór verönd, þaksvalir og sundlaugargarður

Gengið er út úr stofunni á smá verönd fyrir framan stofuna og þaðan er síðan gengið niður í garðinn fyrir framan húsið og einnig uppá þaksvalirnar. Í garðinum við húsið sem er allur ný flísalagður er fallegur hornsófi með borði, sólbekkir og frábær aðstaða til að njóta. Uppi á þaksvölum er gott matarborð með fjórum stólum, gasgrill og sólbekkir, frá þaksvölum er frábært útsýni yfir hverfið og til sjávar.
Í sameign Playa Golf er stór sundlaug með barnalaug og flott svæði með setubekkjum og sturtum í lokuðum/læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að.  Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta.

Aðrar eignir stutt frá

Við erum einnig með fleiri íbúðir í Lomas de Cabo Roig hverfinu, íbúðir, raðhús og einbýlishús – frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.