Nánari lýsing

Playa Golf 78

Gott fjarkahús í Lomas de Cabo Roig hverfinu og er mjög vel búið, WiFi, loftkæling og allt til alls.  Rúmgóð verönd/garður er fyrir framan húsið og einnig eru góðar þaksvalir.  Stór sundlaugargarður er í sameign sem gestir hafa aðgang að, hverfið er rólegt og gott.  Veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn, í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig svo dæmi sé tekið. Einnig er mjög stutt á fjölmarga flotta golfvelli sem eru þarna allt í kring, Las Ramblas, Villamartin og Campoamor.
Gengið er beint inn í opið rými með fallegri stofu og opið inní eldhúsið.  Í stofunni er sófasett, sjónvarp með IPTV aðgangi m.a með íslenskum stöðvum, loftkæling og viftu í loftinu.
Í eldhúsinu er ísskápur með frystihólfi, brauðrist, hraðsuðuketill og helstu áhöld til matargerðar.

Svefnherbergin eru þrjú

Hjónherbergi er á 2. hæð með hjónarúmi, góðum fataskápum, loftkælingu og útgengi út á svalir.
Gestaherbergi á 2. hæð er með tveimur einstaklingsrúmum, vifta í lofti og góðum fataskáp.
Annað gestaherbergi er á fyrstu hæð með tveimur einstaklingsrúmum.

Baðherbergin eru tvö

Baðherbergi með salerni, vaski, baðkari með sturtuaðstöðu og innréttingu er á 2. hæð.
Lítið baðherbergi er á 1. hæð með salerni, vaski og sturtu.
Baðhandklæði fylgja leigu en gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.

Stór verönd, þaksvalir og sundlaugargarður

Gengið er út á smá verönd fyrir framan stofuna, þar er lítið sófasett og þaðan er síðan gengið niður í garðinn við húsið sem er allur flísalagður, þar eru borð og stólar.   Uppi á þaksvölum eru tveir sólstólar sem hægt er að halla bakinu á, frá þaksvölum er frábært útsýni yfir hverfið og til sjávar.  Í sameign Playa Golf er stór sundlaug með barnalaug og flott svæði með setubekkjum og sturtum í lokuðum/læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að.

Aðrar eignir stutt frá

Við erum einnig með fleiri íbúðir í Lomas de Cabo Roig hverfinu, íbúðir, raðhús og einbýlishús – frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.