Nánari lýsing
Terrazas 141
Íbúðin er á annari hæð með suðursvölum í glænýjum íbúðarkjarna í Lomas de Cabo Roig hverfinu og er mjög vel búin. Þrír fallegir garðar eru inná milli húsana með sundlaugum, nuddpotti, leiksvæði fyrir börnin, líkamsræktartækjum og hafa gestir aðgang að þeim öllum. Hverfið er mjög rólegt og gott, veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn, í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig. Einnig eru margir golfvellir stutt frá hverfinu eins og Campoamor, Villamartin, Las Colinas og Las Ramblas.
Komið er inn í anddyri með góðum forstofuskáp, falleg stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi, snjallsjónvarp með erlendum sjónvarpsstöðvum, WiFi, loftkæling og borðstofuborð með sex stólum. Frá stofunni er gengið út á góðar svalir með borði, sex stólum, Weber gasgrilli og flottu útsýni yfir sundlaugargarðinn.
Eldhúsið er bjart og vel búið og þaðan er síðan gengið inní þvottahús/geymslu. Í eldhúsinu er uppþvottavél, örbylgjuofn, Dolce Gusto kaffivél, brauðrist, Airfryer, hraðsuðuketill, blandari, djúsvél og öll helstu áhöld til matargerðar.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og einnig er svefnsófi í stofunni, gistipláss er því fyrir 4-6 gesti og einnig er barnaferðarúm með dýnu, sæng og kodda fyrir 0-2 ára barn.
Hjónherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum, innaf hjónaherberginu er rúmgott baðherbergi með sturtuklefa. Frá hjónaherbergi er hægt að ganga út á svalirnar.
Gestaherbergið er með tveimur einstaklingsrúmum og góðum fataskáp. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum.
Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og haustin.
Baðherbergin eru tvö
Tvö fallegt baðherbergi eru í íbúðinni, annað er innaf hjónaherbergi. Þau eru bæði rúmgóð með salerni, vaski, sturtu, hárblásara, sléttujárni og innréttingu. Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með niður í garðinn og á ströndina.
Svalir og glæsilegur sundlaugargarður
Gengið er út úr stofunni á fallegar svalir sem snúa í suður og með útsýni yfir sundlaugargarðinn. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta. Gott borð með sex stólum og Weber gasgrill er á svölunum. Einnig eru tveir léttir sólstólar í íbúðinni sem hægt er að kippa með niður í garðinn.
Í sameign Terrazas eru þrír garðar inná milli húsanna í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar eru tvær stórar sundlaugar, heitur pottur, barnalaug, vaðlaug, líkamsræktartæki, leiksvæði fyrir börn og sturtur. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta. Garðarnir eru einstaklega fallegir og mjög fjölskylduvænir.
Aðrar eignir stutt frá
Við erum einnig með fleiri íbúðir í Terrazas kjarnanum til leigu, frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.
Einnig erum við með Einbýlishús og raðhús í ca. 5 mín göngufæri frá Terrazas.