Nánari lýsing

Terrazas 184

Íbúðin er á annari hæð með góðum svölum í Lomas de Cabo Roig hverfinu og er mjög vel búin (VT-483997-A).  Þrír fallegir garðar eru inná milli húsana með sundlaugum, heitum potti, leiksvæði fyrir börnin, og líkamsræktartækjum. Hverfið er mjög rólegt og gott,  veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn, í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig.  Einnig eru margir golfvellir stutt frá hverfinu eins og Campoamor, Villamartin, Las Colinas og Las Ramblas. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu.
Gengið er inní forstofu með skápum og þaðan inn í fallega stofu, borðstofu og opið er inní eldhúsið.  Í stofunni er góður sófi, snjallsjónvarp með erlendum sjónvarpsstöðvum, Apple TV, WiFi og loftkæling. Frá stofunni er gengið út á svalir með borði, stólum og flottu útsýni yfir garðinn.
Eldhúsið er bjart og vel búið og þaðan er síðan gengið inní þvottahús/geymslu. Í eldhúsinu eru öll helstu áhöld til matargerðar, einnig er neysluvatnskrani svo drekka má vatnið beint úr krana.

Svefnherbergin eru tvö

Hjónherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum, innaf hjónaherberginu er rúmgott baðherbergi með sturtuklefa. Frá hjónaherbergi er einnig hægt að ganga út á svalirnar.
Gestaherbergið er með 2 einstaklingsrúmum og góðum fataskápum.  Barnaferðarúm með góðri dýnu ásamt sæng og kodda er í íbúðinni.  Sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og haustin.

Baðherbergin eru tvö

Tvö fallegt baðherbergi eru í íbúðinni, annað er innaf hjónaherbergi. Þau eru bæði rúmgóð með salerni, vaski, sturtu, hárblásara, sléttujárni og innréttingu.  Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti.  Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með niður í garðinn og á ströndina.

Svalir og sundlaugargarður

Gengið er út úr stofunni á fallegar svalir með útsýni yfir sundlaugargarðinn.  Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta.
Í sameign Terrazas eru 3 garðar inná milli húsanna í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að.
Þar eru 2 stórar sundlaugar, heitur pottur,  barnalaug, vaðlaug, líkamsræktartæki, leiksvæði fyrir börn og sturtur.
Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta.  Garðarnir eru einstaklega fallegir og mjög fjölskylduvænir.