Nánari lýsing

Valentino Golf 68 – Blokk 3

Íbúðin er á 3. hæð í Valentino Golf í Villamartin, fallegur sameiginlegur sundlaugagarður með þremur sundlaugum, tennisvelli og leikvelli fyrir börnin.  Hverfið er mjög rólegt og gott, Villamartin Plaza torgið er í ca. 10 mín göngufjarlægð frá húsinu og þar eru frábærir veitingastaðir, barir, matvörubúð, kínabúð, apótek og fleira.  Við hliðina á Villamartin Plaza er síðan klúbbhúsið fyrir Villamartin golfvöllinn svo þessi eign er tilvalin fyrir golfarana.  Einnig eru margir aðrir golfvellir stutt frá hverfinu eins og Campoamor, Las Colinas og Las Ramblas.  Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu með fjarstýrðum opnara.
Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi, snjallsjónvarp, WiFi, loftkæling og fallegt borðstofuborð með stólum, frá stofunni er gengið út á góðar svalir.  Eldhúsið er bjart og vel búið með öllum helstu áhöldum til matargerðar.

Svefnherbergin eru tvö

Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og einnig er svefnsófi í stofunni,  gistirými er því fyrir 4-6 gesti og einnig er barnaferðarúm.
Hjónherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum, innaf hjónaherberginu er rúmgott baðherbergi með sturtuklefa.
Gestaherbergið er með tveimur 90cm einstaklingsrúmum sem einnig má setja saman í eitt rúm og góðum fataskápum.
Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu, sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og haustin.

Baðherbergin eru tvö

Tvö falleg baðherbergi eru í íbúðinni, annað er innaf hjónaherbergi. Þau eru bæði rúmgóð með salerni, vaski, sturtu og innréttingu.  Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti.  Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með niður í garðinn og á ströndina.

Svalir, þaksvalir, sundlaugargarður og tennisvöllur

Gengið er út úr stofunni á fallegar svalir með útsýni yfir garðinn, laugina og leikvöllinn.  Einnig eru stórar einka þaksvalir með íbúðinni með borði, stólum, sólbekkjum og flottu útsýni yfir hverfið.
Í sameign Valentino Golf eru þrjár sundlaugar, tennisvöllur og leikvöllur fyrir börn, garðurinn er inná milli húsanna í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að.  Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta.  Garðarnir eru einstaklega fallegir og mjög fjölskylduvænir.