Nánari lýsing

Villamartin Gardens 170

Íbúðin er í Recidencial Villamartin Gardens kjarnanum sem samanstendur af níu fjölbýlishúsum sem saman hafa aðgengi að þremur sundlaugum,  þar af er ein yfirbyggð og upphituð yfir vetrartímann.  Íbúðin er á jarðhæð og er mjög vel búin, WiFi, gasgrill, loftkæling og allt til alls.  Matvöruverslanir og veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á markaði, Villamartin Plaza, á flotta golfvelli,  í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig.  Einnig er lokuð bílageymsla sem gestir hafa aðgang að fyrir bílaleigubílinn.

Komið er inní fallega stofu með tungusófa sem einnig er svefnsófi, hægindastól, Smart TV og fallegt borðstofusett, opið er yfir í eldhúsið.
Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, neysluvatnskrana, kaffivél, blandara, vöfflujárni, samlokugrilli, brauðrist, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar.
Þvottahús er innaf eldhúsi með þvottavél og smá geymslu.
Hægt að ganga út á mjög rúmgóða flísalagða verönd frá svefnherbergi, stofu og þvottahúsi,  hún snýr í suður og er með glerlokun að hluta,  þar eru sólbekkir, borð, stólar, hornsófi og Broil King gasgrill. Þarna er frábær aðstaða fyrir gesti til að borða úti og njóta blíðunnar. Frá verönd er gengið niður nokkrar tröppur að sundlaugargarðinum sem er á milli húsana.

Svefnherbergin eru tvö

Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og í stofu er svefnsófi og því býður íbúðin uppá gistirými fyrir 5-6 manns, einnig er barnaferðarúm.
Hjónherbergið er með hjónarúmi og góðum fataskápum og innangent er inná baðherbergi með sturtu.
Gestaherbergið er með einu einstaklingsrúmi og hjónarúmi sem er 135×200, sjónvarpi og góðum fataskápum.
Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og góðum rúmum.  Sængur eru í íbúðinni til að nota á vorin og haustin.

Baðherbergin eru tvö

Innaf hjónaherbergi er baðherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er til vinstri þegar komið er inn í íbúðina, þar er salerni, vaskur, góð sturta og skúffur.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.

Sundlaugargarður með þremur sundlaugum þar af ein yfirbyggð og upphituð á vetrartíma

Í sameign inni á milli húsanna er sundlaugargarður með þremur sundlaugum í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar eru 3 stórar sundlaugar, barnalaug, leiksvæði fyrir börn, líkamsræktartæki, Petanque völlur og sturtur. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta veðurblíðunnar á Spáni.  Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.  Stór og flott sundlaug er sunnanmegin við íbúðina en samt ekki alveg fyrir framan svo gestir verða ekki fyrir ónæði frá lauginni á veröndinni.  Upphitaða laugin er norðanmegin við húsið.

Aðrar eignir stutt frá

Við erum einnig með aðrar íbúðir í Villamartin Gardens kjarnanum og einnig í Mirador de Villamartin  og Green Hills sem eru við sömu götu og stutt að labba á milli.  Frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.