Nánari lýsing
Vista Azul XXIX nr. 101
Íbúðin er á jarðhæð í Vista Azul XXIX í Villamartin hverfinu með aðgengi að fallegum sameiginlegum garði með frábærri aðstöðu.
Íbúðin er mjög vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, WiFi og loftkæling/hitun í allri íbúðinni. Mjög rúmgóð 200fm verönd er fyrir framan, meðfram og aftan íbúðina sem er alveg lokuð með skjólveggjum, þar er útiborð með sex stólum, stólar með hallanlegu baki, sófasett, gasgrill, sólbekkir og frábær aðstaða til að slaka á og njóta.
Falleg björt stofa sem einnig er borðstofa og opið er inní eldhúsið. Í stofunni er góður sófi og snjallsjónvarp svo gestir geta td. skráð sig inná sitt NETFLIX. Frá stofu og eldhúsi er rennihurð út á stóra verönd með borði, stólum, sólbekkjum og góðri aðstöðu til að njóta blíðunnar. Eldhúsið er bjart og vel búið með ísskáp, uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, blandara, hraðsuðukatli og helstu áhöldum til matargerðar.
Svefnherbergin eru þrjú
Hjónaherbergi er með hjónarúmi, góðum fataskápum með skúffum og innangengt inná sér baðherbergi með sturtu. Einnig er útgengt út á veröndina frá hjónaherberginu.
Herbergi 2 er með hjónarúmi og góðum fataskápum með skúffum.
Herbergi 3 er með hjónarúmi og góðum fataskápum með skúffum.
Öll svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum, góðar sængur eru í íbúðinni sem gott er að nota á vorin og yfir vetrartímann.
Baðherbergin eru tvö
Baðherbergi er innaf hjónaherbergi með salerni, vaski, góðri sturtu og innréttingu með skúffum.
Hitt baðherbergið er með salerni, vask, góðri sturtu og innréttingu.
Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti og einnig er hárblásari. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina. Þvottavélin er síðan í lokuðum skáp úti á veröndinni.
Upphituð innisundlaug, sauna, barnaleikvöllur og líkamsræktartæki
Í sameign er æðislegur sundlaugargarður með sundlaug, nuddpotti, barnalaug, Vista Park leikvelli fyrir börn og líkamsræktartækjum,. Einnig er upphituð innisundlaug með nuddpotti og saunaklefa, garðurinn er í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og slaka á og njóta veðurblíðunnar á Spáni. Garðurinn er einstaklega fallegur og mjög fjölskylduvænn.