Nánari lýsing

Zenia Golf 49

Húsið er á góðum stað í Cabo Roig innst inní botnlanga þar sem stutt er að rölta niður á ströndina og á göngugötuna í hverfinu þar sem er mikið mannlíf alla daga og fjölmargir góðir veitingastaðir.  Matvöruverslun, apótek, bankar og fleira eru í göngufæri og einnig er markaður á fimmtudögum í hverfinu.  Mjög stór sameiginlegur sundlaugargarður með tveimur sundlaugum er í sameign sem gestir hafa aðgang að.
Rúmgóð stofa með tungusófa, borðstofu og þar er einnig góður svefnsófi fyrir tvo gesti.  Loftkæling og loftvifta er í stofunni, í stofunni er sjónvarp með IPTV áskrift m.a. RÚV,  WiFi og bluetooth hátalari.  Frá stofu er hægt að ganga út á verönd fyrir framan húsið, þar er borð, stólar, hægindastólar, sólbekkir og frábær aðstaða til að borða úti og njóta blíðunnar.  Eldhús með helstu áhöldum til matargerðar.  Út frá eldhúsi er lítil yfirbyggð aðstaða þar sem er þvottavél og gasgrill.

Svefnherbergin eru þrjú

Svefnherbergi á 1. hæð er með tveimur nýjum 80×200 einstaklingsrúmum sem einnig má setja saman sem hjónarúm, loftkælingu, viftu í lofti og góðum fataskáp.
Fjölskylduherbergi er á 2. hæð með hjónarúmi, loftkælingu, góðum skápum og inn af því herbergi er auka herbergi með tveimur nýjum 90×200 einstaklingsrúmum og þar er einnig loftkæling.
Frá hjónaherbergi er innangengt inná baðherbergi með sturtu.  Einnig eru fínar svalir út frá hjónaherberginu.
Sængur eru í húsinu til að nota á vorin og haustin, einnig er barnaferðarúm fyrir ungabarn.

Baðherbergin eru tvö

Baðherbergi með WC, vaski og baðkari með góðri sturtuaðstöðu er á jarðhæðinni.  Á efri hæð er lítið baðherbergi innaf hjónaherberginu með WC, vaski og sturtu.
Baðhandklæði eru fyrir gesti, en gestir eru þó beðnir að koma með sín eigin handklæði til sólbaða og til að taka með niður á strönd. Hárblásari er í húsinu.