Nánari lýsing
La Florida – Zeniamar II nr. 79 – neðri hæð
Fallegt íbúð á neðri hæð í Zeniamar kjarnanum í La Florida hverfinu, glæsilegur sundlaugargarður. Staðsetning Zeniamar er mjög góð en kjarninn er í Playa Flamenca hverfinu á Torreviejasvæðinu og innan hverfisins er lítil verslunarmiðstöð með veitingastöðum í göngufæri. Kjarninn er örstutt frá laugardagsmarkaðnum í Playa Flamenca og Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni en þar má fá finna úrval góðra veitingastaða ásamt verslunum eins og H&M – Primark ofl. – 10-15 mínútna rölt er í stórmarkaðinn Carrefour og Go Kart.
Falleg stofa með góðum sófa, sjónvarpi, loftkælingu og borðstofu. Gott og opið eldhús með öllum helstu áhöldum til eldamennsku. Glæsileg 60fm verönd er við húsið með húsgögnum, gasgrilli og sólbekkjum.
Svefnherbergin eru tvö
Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, annað með hjónarúmi og hitt með tveimur einstaklingsrúmum. Loftkæling og viftur í loftum, góðir fataskápar.
Baðherbergi
Baðherbergi með salerni, vaski, baðkari með sturtuaðstöðu og innréttingu. Baðhandklæði fylgja leigu og einnig er hárblásari í húsinu. Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.