Nánari lýsing

Zodiaco Beach III – Íbúð með þaksvölum

Falleg og vel búin íbúð á góðum stað í Lomas de Cabo Roig hverfinu með góðum þaksvölum.  Allur helsti búnaður er til staðar, Wifi, kolagrill, loftkæling o.s.frv.  Stór sundlaugargarður er í sameign sem gestir hafa aðgang að, hverfið er rólegt og gott.  Veitingastaðir eru í göngufæri og stutt að skreppa á ströndina, á fimmtudagsmarkaðinn, í La Zenia mallið og niður á göngugötuna í Cabo Roig svo dæmi sé tekið. Einnig er mjög stutt á fjölmarga flotta golfvelli sem eru þarna allt í kring, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og fleiri.

Gengið er beint inn í opið rými með góðri flísalagðri stofu sem einnig er borðstofa og opið eldhús.  Í stofunni er svefnsófi, smart TV, dvd spilari og loftkæling.  Eldhúsið er vel búið með ísskáp með frystihólfi og öll helstu áhöld til matargerðar.

Svefnherbergin eru tvö

Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum og einnig er svefnsófi í stofunni,  gistirými er því fyrir 5-7 manns.
Hjónherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og viftu í lofti.
Gestaherbergið er með hjónarúmi og einstaklingsrúmi, góðum fataskáp og viftu í lofti.
Sængur, koddar og rúmföt fylgja fyrir gesti og einnig er barnaferðarúm.

Baðherbergið

Rúmgott baðherbergi með salerni, vask og sturtuklefa.  Baðhandklæði fylgja leigu fyrir gesti.
Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til notkunar í sundlaugargarði og til að taka með á ströndina.

Þaksvalir og sundlaugargarður

Góðar svalir eru út frá stofunni með borði og stólum. Íbúðinni fylgja einnig 65 fm þaksvalir þar eru sólbekkir, kolagrill, borð og stólar, frá þaksvölum er frábært útsýni yfir hverfið og til sjávar.
Í sameign er stór sundlaug með barnalaug og flott svæði með setubekkjum og sturtum í lokuðum/læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að.  Þarna er frábær aðstaða til að sóla sig og njóta blíðunnar á Spáni.

Aðrar eignir stutt frá

Við erum einnig með fleiri íbúðir í Lomas de Cabo Roig hverfinu, íbúðir, raðhús og einbýlishús – frábær kostur ef nokkrar fjölskyldur eru að ferðast saman.

 

 

 

 

.